Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Fluttningar

23. desember 2007 klukkan 01:21
Hætt hér úje
nýtt blogg enn á ný;
http://gullabj.blogspot.com/

Jájá svona er þetta bara...mér lýst mun betur á þetta og þar mun ég vera þegar ég nenni að blogga eitthvað ruglSvalur

Drasl

17. desember 2007 klukkan 01:29




Þessi síða er svo ógeðslega mikið drasl
vá hvað ég er pirruð á þessu. Alltaf eitthvað bölvað vesen á þessu crappi

Bless blogg.

Raunveruleg martröđ morgunnsins

04. desember 2007 klukkan 22:33

Hei ég vil benda fólki á að tékka á nýrri færslu Önnu Þonn sem ber yfirskrfitina Greinilegt að ég á að vera að læra.  Hún fjallar þó á engan hátt um eitthvað bull. Væri sérlega gaman ef einhver af mínum ástkæru bekkjarsystrum sem lesa þetta blogg myndu líta á færsluna hennar. Hún er með link hérna til hægri (sá efsti). Alltaf gaman af henni Málefna Önnu.



Annars er það að frétta af mér að ég brást næstum í grát í morgunn (sem er afar sjaldgæft á mínum bæ) er ég vaknaði ekki upp við martröð. Nei heldur breyttist morguninn í verstu martröð háskólastúdentsins. En það var þannig að ég var að læra í aðferða fræði langt fram á nótt og var orðin vel tjúnuð á því af völdum þessara drykkja hérna
 OG

sem var hið fínasta mál því ég gat ekki sofnað og lærði því bara meira. En þegar liðið var á meira en miðja nóttina ákvað ég að fá mér lúr. Ég stillti klukkuna kl 7 og prófið átti svo að byrja kl 9. Þannig að ég ætlaði í góða sturtu, fá mér staðgóðan morgunnverð og lesa örlítið yfir glósurnar í góðum gír áður en ég héldi í prófið. Jæja ég vakna svo allt í einu upp með andfælum á hinum endanum í rúminu með símann minn í hendinni. Leit á klukkuna sem var 9:10. HOLY SHITTTTTTURUINN. Já í fyrsta sinn í minni skólagöngu átti ég að fara í  stofu með lengri prófatíma (sem betur fer í þessu tilfelli) og það seinasta prófið sem ég mun taka í háskóla nema ég fari í framhaldsnám. Ég með tárin í augunum og andfílu á við versta skóarbjörn rauk út í bíl með pennaveski og vasareikni mér að vopni. Náði svo að vera komin inn í stofu 9:30 (það hefði ekki átt að hleypa mér út í umferðina í þessu ástandi). Konan sem sat yfir var afar væn og gömul eins gengur og gerist í háskólum á Íslandi. Hún vorkendi mér og sagði bara æææjæ átt þú að koma í próf´hérna núna. Stuttu síðar kvittaði ég fyrir mig settist með prófið og vonaði að ég hafði ekki truflað hina með sértæku námsörðuleikana. Svo sat ég í 15 mín skoðaði prófið sem ég skildi ekkert og róaði mig svo niður og byrjaði að reikna. Já eftir allt saman þá reddaðist þetta og ég skildi fullt eftir smá umhugsun og hjálp frá kennaranum.

Það fynda er að þetta er í fyrsta skiptið sem ég man eftir að taka skilríki með mér inn í prófið....hef alltaf gleimt því heima og einu sinni send út í bíl að sækja það. Fáránlegt að muna eftir því undir þessum kringumstæðum og konan gamla kærði sig lítið um að skoða það hún sá hversu einlæg og mygluð ég var. En mikið er ég fegin fyrir lengri próftíma jesús minn...veit ekki hvað ég hefði gert án hans.

Jæja saga búin bless.

1. Desember. JÓLATÍMI.

01. desember 2007 klukkan 15:07

Ég sit hér við lærdóm eins og svo oft áður í upphafi desembermánaðar. Þetta er alveg ágætt. Aðferðafræði er undursamlega skemmtileg.

En fyrst að desember er gengin í garð og fyrsti í aðventu á morgunn hef ég byrjað að hlusta á mitt uppáhalds jólalag. Tók reyndar forskot á sæluna í gær þegar við mákona mín og bróðursonur bökuðum pizzu og heirðum þetta yndislega lag á
http://jolastjarnan.net/.


Mig langar með þessu bloggi að deila með ykkur þessu lagi og ég veit að það ylur henni Mist um hjartarætur. Ég ætla að spila þetta lag hástöfum meðan ég pakka inn gjöfum rétt fyrir jólin. Færir mér hugljúfar minningar að hlusta á þetta lag.

Hér er lagið og krúttaralegt myndband eins og hún Sæja orðaði það.

http://youtube.com/watch?v=LHA-DB4Pjz8
Christmastime með Graskerunum


Bless og gleðilegan Desember.




p.s Anna Þonn þó svo þú sért ekki alveg að nenna því að hanga á youtube villtu samt vera svo væn að kíkja á þá linka sem ég set.  Þeir eru aldrei waist of time. Ég set bara skemmtilega linka.




Hvađ get ég sagt...mér leiđist

27. nóvember 2007 klukkan 01:10

Ég er komin með nóg af Bangsa færslunni.

Í staðin ætla ég að setja hér lista yfir það sem ég væri rosalega til í núna


 
Að vera þarna í góðu dekri í hengirúmi með framandi ávexti og kokteil mér við hlið.

Að vera búin með öll verkefnin sem bíða mín þessa stundina 

Að vera komin með alla þessa þætti í 4. seríu


Og þessa í 1. Seríu

Rosa mikinn snjó svo ég gæti lært á snjóbretti og farið út að leika    


Að Kormákur (bílinn minn)  myndi öðlast nýtt líf og læknast með kraftaverki. Hann á víst ekki langa ferð eftir ljúfurinn


 
Að þetta kjánaprik  myndi hætta þessu rugli og veseni. Algjörlega tilgangslaust


 

vera á tónleikum með þeim  (Kannski of fjarlægur draumur myndu margir segja)

 
Að vera komin upp í heita og hlýja rúmið mitt og haft það kósý eins og hann Julian í júní



 

Held ég geri það bara og bloggi einhverntíman seinna. Guð mig langar svo í hengirúm núna.

6 ára í góđum gír og ţurfti ađ standa upp til ađ skipta um stöđ á TV-inu

15. nóvember 2007 klukkan 18:11

Back in the days á laugardags eftirmiðdögum var gríðarlega spennandi framhaldsteiknimynd á skjánum hjá rúv. Þessi teiknmynd var ómissandi í mínu lífi og var oft drifið sig heim kl 6 til að missa ekki af þessu ævintyri sem ætlaði aldrei að enda. Ég man ekki einu sinni hvernig það endaði. Þetta var í kringum svona 5-6 ára aldurin minnir mig þegar Bangsi bestaskinn og Gormur vinur hans voru bestir. Margir áttu meira að segja svona Bangsa sem sett var kasetta í og svo sagði hann söguna af ævintýrinu mikla,hafði þá eiginleika að hreifa munn og augu sem þótti virkilega flott og töff í þá daga. Ég man eftir að hafa óskað mér Gorma-bangsa í jólagjöf því mér fannst hann svo fyndin og pínu kjáni. Mér var svo tjáð af skólafélaga að svoleiðis bangsi fengist ekki á íslandi. Ég gat þá ekki einu sinni beðið íslensku jólasveinana um að gefa mér svoleiðis. Hvar var Toys R Us þá eiginlega.


smá  linkur á video.






Já ég fann ekkert betra að blogga um en þetta því miður. Bangsi bestaskinn var málið ásamt Turtles, Snorkunum sem áttu heima í sjónum og mörgum fleirum. Væri gaman að fara aftur í 90´s og vera lyklabarn í Engihjalla gettóinu að gera dyrat, renna á snjóþotu í stóru brekkunni, klifra í fokheldum húsum þar sem Ingunn handleggsbrákaðist og spila fótbolta í drullunni á malarvellinum.

nóg um þetta blessó

Landiđ ađ fara til fjandans eđa?

06. nóvember 2007 klukkan 00:36

Þegar ég leit á laugardags eða sunnudagsmoggann um helgina blasti við mér fyrirsögnin.

"Uppsellt á jólatónleika Björgvins Halldórssonar"

Ekki nóg með það að það seldist upp heldur gerðist það á klukkutíma.

Því miður get ég ekki bara af því gert en mér finnst þessi maður vera ofmettnasti tónlistarmaður íslands eða bara evrópu ef út í það er farið þó hann njóti bara velgengni hér á klakanum. Þess vegna er ég afar hissa yfir því að miðarnir hafi selst upp á klukkustund. Það er bara eitthvað við hann sem mér líkar afar illa við, mjög mjög líklega hrokinn en ekki hvað. Ég meina maðurinn sagði við pizzusendladreng sem kom með sendingu til hans og annarra á Brodway á einhverja æfinguna " hei helduru að Elvis hafi þurft að borga fyrir pizzu, kóngar borga ekki". Hann var ekki að grínast, hann borgaði ekki. Hrokafillsti og ofmettnasti pappakassi lansins.

Lík þessu á þessari spurningu.
Hefur einhver prófað að snúa "this side up" á örbylgjupoppinu niður þegar verið er að poppa? Hvað getur hugsanlega gerst? samt þorir maður ekki annað en að fara eftir þessum hörðu reglum.

Tilgangslausar pćlingar í amstri dagsins.

27. október 2007 klukkan 19:37

Ég lofaði í fyrstu færslu þessa nýja bloggs að ég myndi koma reglulega með pælingarnar mínar. Þær eru einstaklega djúpar þannig að ég bið ykkur að vera ekkert að sjóða í ykkur heilann yfir þessu. Eitthvað af þessu hefur heyrst áður, annað hefur lengi vafist fyrir mér.

Getur maður andað út um nefið og munninn á sama tíma?

Afhverju er poppkorn ekki grænmeti?

Geta sköllóttir fengið lús?

Hvernig getur Kalli verið stytting fyrir Karl ef það eru fleiri stafir í Kalli

Munið eftir Donkey Kong tölvuspilinu? Hvaða snillingur ákvað þetta nafn þegar Donkey kong er api??

Hvernig fór manneskjan að því að senda mann á tunglið áður en hún gat t.d sett hjól undir ferðatöskur.

Kemur beikon lykt þegar svín prumpa?

Okei ef maður leggur bílnum sínum í stæði hjá einhverju fyrirtæki sem stendur að aðeins megi leggja í 30 mín, gæti maður þá lagt í næsta stæði við hliðina á þegar 30 mín eru liðnar

Hvað myndi gerast ef allir myndu sturta niður á sama tíma?

Er hægt að hnerra með augun opin? Ef ekki afhverju ekki?

Hvað ef maður er í helvíti og er reiður við einhvern.
Hvert getur maður sagt þeim að fara?

Afhverju er boxhringur ferhyrntur?

Ef ástin er blind, hvernig getur maður þá trúað á ást við fyrstu sín?

Ef maður væri í flugvél að ferðast á hraða hljóðsins og myndi labba frá aftast hluta vélarinnar til þess fremsta væri maður þá að ganga hraðar en hljóðið?

Borga síamstvíburar fyrir einn miða eða tvo þegar þeir fara í bíó eða tónleika eða eitthvað?

Fólk segir stundum "vá mér er svo illt í hausnum að það er ekki fyndið" og "mér er svo kallt að það er ekki fyndið" og allskonar svona í þessum dúr sem endar á "að það er ekki fyndið". Mín hugleiðing er afhverju í fjáranum ætti það líka að vera fyndið...hahaha mér er svo illt í höfðinu. Við verðum að pæla betur í hvað við segjum svo það hljómi ekki svona fáránlega.

Þegar ég ferðaðist með Icelandexpress frá danmörku fyrir stuttu síðan var ég að rína í sölubæklinginn þeirra sem er ekki frásögufærandi nema það að þegar ég kom að matseðla-kaflanum stóð þessi settning "Food2go". Do I need to say more?

Um daginn var ég í kennslustund með fjarnemum þar sem ég er í fjarnámi í aðferðafræði áfanga. Í þessum tíma var því fólk allstaðar að á landinu. Af einhverjum ástæðum fórum umræður út í veðurfar sem ég skil ekki alveg samhengið, þar sem við vorum í aðferðarfræði rannsókna í félagsvísindum. En jæja umræðan fór svo út í það að metast í hvaða bæjarfélagi væri besta veðrið eða öllu heldur alltaf gott veður svona í smá gríni en hjá sumum í fullri alvöru. Æii ég veit ekki en þetta er soldið þreytt. Ein sagði "það er alltaf gott veður í Hafnafyrði nema núna (eins og fólk segir mjög oft)..eignlega besta veðrið á landinu þar. Okei stöldrum aðeins við, Hafnafjörður er á höfðuborgarsvæðinu og þar af leiðandi mjög nálægt Garðabæ, Kópavogi og Reykjavík sem gerir það að verkum að veðurfar er nánast undantekningarlaust alveg eins í þessum bæjarfélugum. Það fer bara eftir því hvar þú ert á þessum stöðum upp á rokið og lognið að gera. 


Jæja nú er nóg komið. Best að fara að hugsa um lærdómin mikla. see ya

Helgi tónlistarinnar

19. október 2007 klukkan 20:55
Þessi helgi mun fara í lærdóm á daginn og tónleikaflakk kvöld og nætur

Ég á nefnilega miða á


Fjörið byrjað fyrir tveimur kvöldum síðan og heldur nú áfram og verður bara betra og betra....Já ég læt mig sko hafa þennan troðining gott fólk. Það er alveg þess virði.
Í tilefni bloggsins tók ég lítið próf á netinu sem ber nafnið "Hvaða lag ert þú?". Niðurstaðan er hér fyrir neðan á myndbandi og með texta við lagið. Niðurstaðan kemur svo sannarlega á óvartSkömmustulegur enda ekkert í anda við mig og það sem ég sé á Airwaves. En það þýðir nú ekki að deila við dómarann svona er þetta bara (eða er ekki). Ekki beint það sem maður bjóst við.  Svona skidegodt lag engu að síður. Eftir þessa niðurstöðu nennti ég ekki einu sinni að kanna hvaða hljómsveit ég væri í öðru prófi.
En hvaða lag eru þið? Njótið vel og góða helgi.


http://www.quizilla.com/users/StarlightPuppy/quizzes/What%20Song%20Are%20You%3F%20(Video%20%26%20Lyrics%20Included)/

~~ .::First Time .:: ~~

Your song is First Time by Lifehouse because you seem to be in love at the moment! Your thoughts revolve around this person 24/7 and you would hate to be away from them for any length of time. Congrats :)


Lyrics:
We're both looking for something
We've been afraid to find
It's easier to be broken
It's easier to hide

Looking at you, holding my breath
For once in my life I'm scared to death
I'm taking a chance letting you inside

I'm feeling alive all over again
As deep as the sky under my skin
Like being in love, she said, for the first time
Maybe I'm wrong, I'm feeling right
where I belong with you tonight
Like being in love to feel for the first time

The world that I see inside you
Waiting to come to life
Waking me up to dreaming
Reality in your eyes

Looking at you, holding my breath
For once in my life I'm scared to death
I'm taking a chance letting you inside

I'm feeling alive all over again
As deep as the sky under my skin
Like being in love, she said, for the first time
Maybe I'm wrong, I'm feeling right
where I belong with you tonight
Like being in love to feel for the first time

We're crashing
Into the unknown
We're lost in this
But it feels like home

I'm feeling alive all over again
As deep as the sky under my skin
Like being in love, she said, for the first time
Maybe I'm wrong, I'm feeling right
where I belong with you tonight
Like being in love to feel for the first time

Like being in love she said for the first time
Like being in love to feel for the first time

Fjöriđ í Köben.

15. október 2007 klukkan 13:45


Jæja þá er maður komin aftur til Íslands eftir æðislega skemmtilega danska ferð. Jesús Guðsson hvað það var gaman. Maður djammaði og túristaðist með bekknum í heila viku og hélt svo áfram í heimsóknum til Ingunnar, Bjarna og Tómasar Boga annarsvegar og Evu, Sindra og Natalíu hinsvegar. Takk fyrir mig huggulega fólk.Hlæjandi
Ég biðr reyndar Sesselju Dagbjörtu afsökunar fyrir hafa ekkert náð að hitta hana alminnilega...ég var eitthvað óhress kvöldið góða sem ég ætlaði að vera í bandiSkömmustulegur.

Já þetta var ansi hress ferð verður að segjast og ég og Eva vorum næstum búin að sækja um fyrir mig á kolleginu hennar fyrir næsta ár. Hvað skal læra er þó kannski ekki ákveðið haha. Nei það kemur allt í ljós hvað Guðlaug gerir að ári en eitt er víst að ég er að fara í ferðalag með Þonnsystrum og fleirum. Annars ætla ég ekki að skrifa einhvern ferðapistil um DK....hann er ekki fyrir internetið.


Ég ætla að telja hér upp afmælisbörn oktober mánaðar...sumir áttu afmæli meðan ég var í ruglinu í Köben.

7. okt María Vera 25 ára
8.okt Sibbi 24 ára
10. okt Hlínsa 24 ára.
Svo í þessari viku eru það beibíin í hópnum
16. okt Natalía Tinna 4 ára
18. okt Tómas Bogi 1 árs.
Til hamingju gamla og unga fólkSvalur

blogg búið blessó